Fréttir:

  • Vinnuskólinn sumarið 2009

    1.4.2009

    Vinnuskólinn verður starfandi frá 8. júní til 27. júlí í sumar.

    Unnið verður 4 daga vikunnar; frá mánudegi til fimmtudags - ekki verður unnið á föstudögum.

    14 og 15 ára unglingar taka sér frí vikuna 12. – 19. júlí.

     

    Breytingar hafa orðið á vinnufyrirkomulaginu frá fyrra ári :

     Vinnudagurinn styttist um ½ klst. hjá 14 og 15 ára en um 1 klst. hjá 16 ára.

    • 14 ára geta unnið 72 klst. í heildina og verður vinnutíminn hjá þeim kl. 12:30 – 15:30.

     

    •  15 ára geta unnið 72 klst. í heildina og verður vinnutíminn hjá þeim kl. 08:30 – 11:30.

     

    • 16 ára vinna 6 tíma á dag.

     

    Sækja skal um rafrænt á heimasíðu Akureyrarbæjar og er tekið við umsóknum frá 1.- 19.apríl 2009.

    Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða á Amtsbókasafninu og í þjónustuanddyri Ráðhússins.


     

     

  • Bæjarráð samþykkir laun unglinga í Vinnuskóla Akureyrarbæjar sumarið 2009

1.4.2009

 

  • Bæjarráð samþykkir að laun unglinga í Vinnuskóla Akureyrarbæjar sumarið 2009 verði sem hér segir:


8. bekkur (14 ára) kr. 359  10,17% orlof er innifalið."


9. bekkur (15 ára) kr. 410 10,17% orlof er innifalið.


10. bekkur (16 ára) kr. 539 10,17% orlof er innifalið.

 

 

  • Þann 5. ágúst var síðasti vinnudagurinn hjá flestum krökkunum í vinnuskólanum á Akureyri. Krakkarnir sem hafa lokið 7 vikum í vinnuskólanum geta nú tekið sumarfrí fram að skóla en þau sem ekki hafa klárað 7 vikur geta unnið út þessa viku (6. – 9. ágúst) til þess að ná 7 vikum samtals. Þetta sumar hefur gengið mjög vel og krakkarnir hafa verið til sóma og staðið sig vel í því að halda bænum fögrum og hreinum. Vinnuskólinn og fjölmiðlafræðslan þakka kærlega fyrir sig og vona að þau hafi lært mikið og skemmt sér vel í sumar.


     

    Látum myndirnar tala sínu máli.

     

  •  30.07.08

    Þann 10. júlí var hin árlega sumarhátið vinnuskólans haldin með pompi og prakt. Þar hittust krakkar frá öllum skólum bæjarins á San Siro vellinum við Lundarskóla. Fyrst um sinn var nafnakall hjá hverjum skóla fyrir sig, þar fengu allir miða fyrir pylsu, kók o.fl. Upp úr níu byrjuðu svo kappleikirnir, en það var keppt í fótbolta, blaki og sápukúlubandí og einnig var hægt að takast á í Gladiator. Þetta gekk allt saman vel fyrir sig og flestir skemmtu sér vel. Í fótboltanum stóð lið Glerárskóla 1 uppi sem sigurvegarar, Brekkuskóli 1 í öðru sæti og Glerárskóli 2 í þriðja sæti. Í blakinu voru fá lið en allir skemmtu sér vel, Brekkuskóli sigraði, Lundarskóli var í öðru sæti og Síðuskóli í þriðja sæti, en það voru einungis þrjú lið sem að kláruðu keppni en þess má geta að fimm lið hófu keppni. Í sápukúlubandíinu stóð lið Brekkuskóla 1 uppi sem sigurvegari og margir blotnuðu mikið. Um tólf leytið byrjuðu menn að grilla pylsur og þar safnaðist fyrir geysimikil röð. Þess má geta að á meðan öllu þessu stóð var DJ Stebbi á fullu að stjórna tónlistinni. Dagurinn kláraðist um hálf tvö og allir voru sælir og ánægðir með daginn.

    Um kvöldið var svo hið árlega unglingavinnuball haldið í Sjallanum og voru það N3 sem sáu um fjörið. Krakkarnir skemmtu sér konunglega og dönsuðu fram eftir kvöldi.

     

  • 08.07.08

    Fimtugaginn 10. Júlí verður hinn árlegi vinnuskóladagur haldinn á K.A svæðinu (San Siro) þar sem allir krakkar úr vinnuskólanum ásamt flokkstjórum þeirra mæta klukkan 9 og eiga glaðan dag saman. Krakkarnirhafa skráð sig í lið og munu þau keppa í fótbolta, blaki og “sápukúlubandí.” Einnig verða leiktæki á svæðinu svosem hoppukastalar og bílar og munu svo hinar ýmsu hljómsveitir spila á útisviði sem verður staðsett á svæðinu. Dagurinn endar svo á því að grillaðar verða pylsur svo að allir fari sáttir og saddir heim.

    Um kvöldið verður svo haldið hið árlega vinnuskóla ball í Sjallanum. Hið stórkostlega plötusnúðatríó N3 munu halda stuðinu gangandi með ferskri tónlist og einstaklegri sviðsframkomu. Við hvetjum því alla unglinga sem eru á vegum vinnuskólans að mæta og tjútta fram eftir kvöldi.

               

     

  • 29.05.08

Nú styttist í að vinnuskólinn hefjist en fyrsti vinnudagur er mánudagurinn 9.júní.  Unglingar sem fæddir eru 1993 mæta kl: 8:00 og Unglingar fæddir 1994 mæta kl: 12:30 við þær starfsstöðvar sem sótt var um.

 

  • 15.04.08

Unglingum fæddum árin 1992, 1993 og 1994 er gefinn kostur á að sækja um vinnu hjá Vinnuskóla Akureyrar í sumar.

Sækja verður um rafrænt á heimasíðu Akurerarbæjar, http://www.akureyri.is

Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða á Amtsbókasafninu og í þjónustuanddyri Ráðhússins.

 Umsóknarfrestur er til 19.apríl

 

  • 15.04.08

Bæjarráð samþykkir að laun unglinga í Vinnuskóla Akureyrarbæjar sumarið 2008 verði   sem hér segir:

8. bekkur (14 ára)   kr.  359   (10,17% orlof innifalið)

9. bekkur (15 ára)   kr.  410   (10,17% orlof innifalið)

10. bekkur (16 ára) kr. 489   auk 10,17% orlofs eða alls kr. 539."

 

  • 26.07.07
    Vinnuskólahátíðin var haldin fimmtudaginn 19. júlí síðastliðinn með glæsibrag. Veðrið var gott, hlýtt en skýjað.  Keppt var í sápubandíi, fótbolta og gladiator og heppnaðist það mjög vel að flestu leyti en stöngin brotnaði í gladiatornum og því bar enginn sigur út bítum. Sápubandíið gekk vel fyrir sig og fór fram nokkuð áfallalaust og var það Síðuskóli sem hafnaði í fyrsta sæti. Fótboltinn var haldinn inn í boga og hafði Glerárskóli mikla yfirburði og sigraði nokkuð örugglega.Glitnir styrkti hátíðina og útvegaði leiktæki, svo sem hoppukastala, bíla. sápubandí og frispígolf. Hoppukastalinn var það vinsæll og það margir vildu fara í hann að hann valt á hliðina en nokkrir voru enn inní honum og lokuðust inni. Enginn meiddist þó og allt fór vel. Vífilfell setti upp Coca cola fótboltavöll.
  • Nokkrar upprennandi hljómsveitir héldu uppi stuðinu og spiluðu þekkt lög og fengu góðar undirtektir. Glitnir hélt einnig happdrætti þar sem nokkrir heppnir hlutu bíókort og einnig voru dregnar út vægar peningaupphæðir. Seinna um daginn var vinnuskólinn líka með happdrætti þar sem hægt var að vinna síma, mp3 spilara, inneignir og margt fleira.
    Um kvöldið var svo haldið ball í Sjallanum þar sem DJ Páll Óskar þeytti skífum fram eftir kvöldi. Þar sem bæði krakkar og flokkstjórar fóru á kostum á dansgólfinu. Páll Óskar tók líka nokkur af sínum þekktustu lögum og fékk góð viðbrögð hjá viðstöddum.
    Orri forstöðumaður sagði að hátíðin hafi heppnast vel í allastaði og að krakkarnir  hafi staðið sig vel í íþróttunum. Hann sagðist ekki hafa getað beðið um betra veður og hrósaði Palla fyrir vel heppnað ball um kvöldið.
     
  • 04.07.07
    Þá styttist í sumarhátíð vinnuskólans en hún verður haldin 19. júlí. Herlegheitin hefjast klukkan 10 að morgni við Bogann og verður þar keppt í þremur greinum - fótbolta, sápukúlubandí og Gladiator. Skráning er hafin hjá flokkstjórum og er búist við harðri barráttu á milli góðs og ills.
    Annars mun hátíðin ekki eingöngu snúast um keppnir, það verða hljómsveitir á svæðinu, hjólabílar og ekki má gleyma ljúffengum pylsunum. Um kvöldið er svo ball í Sjallanum þar sem Páll Óskar þeytir skífum fyrir dansi.
     
  • 19.07.07
    Þá eru fyrstu myndirnar komnar inn en þær eru teknar af fjölmiðlahópnum. Á næstu dögum koma svo inn myndir af táningum að vinna fyrir kaupi við almenna umsjá beða.
     
  • 18.07.07
    Hver kannast ekki við að vafra um veraldarvefinn í leit að skemmtun. Vinnuskóli Akureyrar kynnir því með stolti tengil hér til hliðar sem hugsaður er sem úrvals afþreying. Þetta er tengillinn fjölmiðlahópur.